Jafnlaunastefna þessi nær til alls starfsfólks FMS hf. og eru markmið hennar að gæta fyllsta jafnréttis kynjanna sbr. lög nr. 150/2020. Tryggir stefnan að allir starfsmenn njóti sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf óháð kyni. Hver starfsmaður á að vera metinn og virtur að verðleikum sínum og ekki á að mismuna starfsfólki á grundvelli ómálefnalegra þátta.
FMS hf. skuldbindur sig til að viðhalda stefnunni í samræmi við ÍST 85:2012 jafnlaunastaðalinn með því að:
- Framkvæma árlega launagreiningu
- Kynna starfsfólki helstu niðurstöður launagreininga
- Bregðast við óútskýrðum launamun með stöðugu eftirliti og umbótum
- Gera reglulegar innri úttektir
- Halda árlega rýni stjórnenda
- Fylgja lögum, reglum og kjarasamningum sem eru í gildi hverju sinni
Jafnlaunastefna FMS hf. er órjúfanlegur hluti af launastefnu fyrirtækisins.
Ábyrgðaraðili: Framkvæmdastjóri FMS hf. ber ábyrgð á að jafnlaunakerfi sé komið upp og innleitt og því viðhaldið í samræmi við ÍST 85:2012.
Fulltrúi: Öryggisvörður/skrifstofumaður FMS hf. er ábyrgur fyrir því að skila skýrslum til æðstu stjórnenda um jafnlaunakerfið, gæði þess og skilvirkni, sem og tilmælum um úrbætur.