Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á launastefnu FMS hf.
FMS greiðir laun sem taka mið af þeim kröfum sem störf útheimta um menntun, þekkingu, hæfni og ábyrgð. FMS hf. greiðir laun í samræmi við gildandi kjarasamninga. Launastefna samrýmist jafnlaunastefnu FMS.
Framkvæmdastjóri ber formlega ábyrgð á öllum launatengdum ákvörðunum og gætir þess að samræmis sé gætt við alla ákvarðanatöku og tryggir að sömu laun séu greidd fyrir sambærilega eða jafnverðmæt störf.
Launaákvarðanir skulu byggðar á málefnalegum forsendum í samræmi við fyrirliggjandi starfslýsingar, þar sem fram koma þær kröfur sem gerðar eru til viðkomandi starfs.
Tryggja skal öllum jafna möguleika til starf, ábyrgðar, launa, stöðuhækkana, endurmenntunar og starfsþjálfunar.