Starfsreglur

1. Tilkynning um sölu á markaðinn.
1.1. Skip, sem ætlar að selja á fjarskiptamarkaði, verður að tilkynna áætlað aflamagn eftir tegundum, stærð, löndunarstað og komutíma.
1.2. Skip er áætla að selja afla sinn á gólfi, er æskilegt að þau tilkynni sig með minnst 1 sólarhrings fyrirvara, þetta á þó ekki við um dagróðrabáta. Dagróðrabátar tilkynni sig í síðasta lagi fyrir kl. 11:50 fyrir  sölu sem hefst kl 13:00 sama dag.
1.3. Skylt er að áhafnir skipa tegundaflokki fiskinn, þ.e. þorskur, ýsa, ufsi o. s. frv. Skipstjóri eða staðgengill hans skal tilgreina ef um undirmálsfisk er að ræða og hvert magn hans er. Þar að auki verður skip að flokka milli lifandi- og dauðblóðgaðs fisks, og tilgreina aldur dauðblóðgaða fisksins. Þegar útileguskip eiga í hlut er æskilegt að dagmerkja aflann og tilgreina þær upplýsingar við tilkynningu, til dæmis með því að senda lestarkort á viðkomandi markað. Tilgreining og merking VS afla við löndun er á ábyrgð skipstjóra.
1.4. Gæði fisks sem boðin er upp hjá fiskmörkuðum FMS helgast af mörgum þáttum. Starfsmenn markaðsins beita skynmati, þar sem lagt er mat á ytra útlit, hitastig og frágang ( unnið eftir Gæðakerfi FMS). Ekki er lagt mat á aðra gæðaþætti svo sem los, orm, flakanýtingu eða annað það sem ekki kemur fram við ytri gæðamat. Ef eitthvað óeðlilegt kemur fram við ytri gæðamat þá er þeim upplýsingum komið á framfæri við kaupendur í uppboðslýsingu og kaupendur beðnir um að lesa hana vandlega ( athugasemdir).
1.5. Rísi deilur milli kaupanda og seljanda vegna “rangra” upplýsinga skips um afla, aflasamsetningu, gæði eða komutíma, skal tafarlaust bera fram kvörtun við fiskmarkaðinn og kaupendur noti eingöngu athugasemdakerfi FMS í gengum RSF vefinn og í kjölfarið mun stöðvarstjóri viðkomandi markaðar skera úr um réttmæti hennar. Varðandi viðbrögð við röngum upplýsingum vísast í kafla 3, sem um það fjallar.
1.6. Samkvæmt lögum skal allur afli vigtaður af löggiltum vigtarmanni, samkvæmt reglugerð um sjávarafla gefinni út af ráðherra. Ráðstöfun við löndun afla sem seldur er í fjarskiptum er í höndum fiskmarkaðarinns, en seljanda ber að koma á sinn kostnað aflanu til markaðsins, ef ekki er um þjónustu FMS að ræða á staðnum. FMS mun hins vegar sjá alfarið um vigtun og afgreiðslu aflans ef um sölu á gólfi er að ræða, og ef FMS er með þjónustu á löndunarstað.
1.7. FMS hefur einnig leyfi til miðlunar á fiski. Seljandi lætur þá vita um tegundir, magn, stærð og löndunarstað. FMS sér þá um löndun, vigtun og afgreiðslu, sé þess óskað, og fara þá uppgjör og greiðsluskil fram með sama hætti og ef um sölu á uppboði væri að ræða. Á sama hátt getur kaupandi óskað eftir ákveðnum tegundum til kaups og reynir FMS að finna seljanda að þeirri tegund.
1.8. FMS tekur ekki þátt í deilum um eignaraðild á afla. Handhafi fisksins eða sá er tilkynnir afla til sölu, gefur einnig upp hverjum skal greiða andvirðið skal það gert með pappír á sannalegan hátt ( e-mai./fax). Handhafi telst vera sá sem biður um sölu á fiskinum.

2. Skuldbindingar.
2.1. Þegar skip hefur tilkynnt afla sinn til sölu á FMS, er það skuldbundið til að selja afla sinn þar á því verði sem fæst þann dag sem salan fer fram. Það er, eftir tilkynningu um sölu, er ekki hægt að breyta né hætta við. FMS ábyrgist að allur uppgefinn afli skips sé settur á uppboð, en ekki á hvaða verði hann selst. Með þessu er tryggt að losun skips fari fram strax eftir komu þess. Löndunarstaður verður að standast ella ber seljandi aukakostnað sem sannanlega fellur til ef löndunarstaður breytist.
2.2. Kaupandi sem kaupir afla sem er afhentur á flutningstæki á viðkomandi starfstöð fiskmarkaðs, er skylt að hafa flutningstæki, eða samning við flutningsaðila sem hefur reiðubúið flutningstæki, reiðubúið á opnunartíma markaðsins nema um annað sé samið. Landa skal afla í þeirri röð sem hann hefur selst á FMS, ef um fleiri en eitt boð er að ræða af sömu tegund og fleiri en einn kaupanda.
2.3. Allur afli er seldur í umbúðum og ber kaupanda að skila umbúðunum aftur til seljanda innan 3ja sólarhringa frá löndun. Eiganda umbúðanna er þó heimilt að setja aðrar reglur og skulu þær þá kynntar.
2.4. Það er með öllu óheimilt fyrir seljendur og kaupendur að nota umbúðir, sem fengnar eru hjá FMS, í eigin þágu, nema til að flytja fisk til og frá FMS.
2.5. FMS er með samning við Umbúðamiðlun hf. (UM) um afhendingu umbúða til viðskiptavina FMS og UM og gilda reglur UM um umbúðirnar alfarið í þeim viðskiptum.

3. Vanefndir.
3.1. Rísi deilur vegna vigtar, stærðar eða gæða afla, sem seldur er á uppboði hjá FMS, skal starfsmaður FMS látinn vita strax, eða eigi síðar en 24 klst frá sölu, til að útkljá deiluna og skal eingöngu nota til þess athugasemdakerfi á RSF vefsíðu. Ef kvörtun berst of seint miðað við framangreindar forsendur er hún ekki tekin til greina. Ef um réttmæta kvörtun er að ræða, greiðir seljandi kostnað sem af hlýst, en kaupandi ef kvörtunin er ekki á rökum reist. Hafi seljandi gefið rangar upplýsingar skal FMS finna lausn í samráði við deiluaðila. Sé um verulegan mun að ræða á kaupandi rétt á að láta söluna ganga til baka, en seljandi er samt skuldbundinn til að greiða uppsett sölulaun til FMS. Hafi verið um rangar upplýsingar að ræða og gangi salan til baka, þá er FMS ekki lengur skuldbundinn til að selja aflann. FMS getur aldrei borið ábyrgð á andvirði aflans, né mismuni sem kann að verða.
3.2. Kaupanda er skylt að taka afla í umbúðum ef sala hans fer fram í umbúðum. Kaupandi ábyrgist umbúðir afla frá því þær eru komnar á flutningstæki á hans vegum þar til hann skilar þeim á umsaminn stað, innan 3ja sólarhringa. Glatist hluti umbúða eða ef um tjón verður að ræða, ber kaupanda að bæta eiganda þeirra skaðann. FMS ber enga ábyrgð á umbúðunum seljenda, en sér um endurheimtu þeirra.

4. Uppboð – Uppgjör – Reikningsskil.
4.1. Fyrir uppboð verða allar upplýsingar um áætlað magn, samsetningu afla, meðalþyngd, gæði , löndunarstað, og komutíma seljanda að vera tiltækar fyrir kaupendur. Skulu þessar upplýsingar skráðar í tölvu FMS og yfirlit yfir þær sýndar á vef RSF.is fyrir uppboð útprentanlegar af vefnum.
4.2. Samkvæmt lögum um uppboðsmarkað skal krefjast greiðslutryggingar af kaupanda, sé ekki um staðgreiðslu að ræða. Kaupandi verður því að hafa samband við Reiknistofu fiskmarkaða hf (RSF), þar sem gengið verður frá greiðslumáta. FMS er í samstarfi við Reiknistofu fiskmarkaða hf (RSF) um umsjón rafræns uppboðs á fiski. Kaupendur leggja ábyrgðir sínar inn hjá RSF, stílaðar á RSF, og mun RSF sjá um innheimtu reikninga fyrir fiskkaup og kostnaði samkvæmt gjaldskrá FMS sem og innrukkun fyrir önnur þjónustugjöld sem samþykkt hafa verið af kaupendum FMS ásamt þeim fiskkaupum sem kaupandi hefur gert á öðrum fiskmörkuðum tengdum RSF. Ábyrgðirnar gilda því á öllum fiskmörkuðum tengdum RSF. RSF gætir að því að farið sé eftir þeim reglum sem gilda um greiðslur og reikningsskil allra fiskmarkaðanna og viðskiptavina þeirra. Þeir sem staðgreiða þurfa að “deponera” fyrir áætluðum kaupum.
4.3. Kaupandi skal í upphafi skrá sig hjá RSF þar sem fram koma allar nauðsynlegar upplýsingar honum tengdar og kynna sér starfsreglur FMS. Kaupanda verður því næst afhent kaupendanúmer, sem hann notar við uppboðið, tengt nafni hans og greiðslutryggingu, og verða þær upplýsingar skráðar í uppboðstölvu.
4.4. Ekkert lágmarksverð er í gildi, en hver seljandi getur ákveðið lágmarksverð innan ákveðinna marka. Ef fiskurinn selst ekki yfir því verði á uppboði verður seljandi að finna kaupanda sjálfur, en samt sem áður að greiða FMS allan áfallinn kostnað, þ.m.t. uppboðslaun (sjá gjaldskrá). Sé ekki um lágmarksverð að ræða tryggir fiskmarkaðurinn sölu alls aflans.
4.5. Boðið er upp með tölvu, og birtast þá upplýsingar um seljanda, tegund, magn o. s. frv. á skjá (klukku Fisknets) og talið er niður hvert boð þar til verð finnst. Klukkan finnur byrjunarverð eftir verði viðkomandi tegundar/stærð frá síðustu 3 dögum + hækkun sem er sett inn í forsendur hennar af starfsfólki RSF, sem sér um uppboðið fyrir FMS. Þannig heldur uppboðið áfram þar til allur afli hefur selst. Eftir uppboð ber kaupandi allan kostnað sem hlýst af aflanum ( flutning, ísun og fl.).
4.6. Eftir kaup sér kaupandi allar upplýsingar um kaup sín hjá FMS á vef RSF.is ( Einkaaðgang). FMS mun klára allar leiðrétttingar á fjarskiptum og öðrum stæðum fyrir kl 11;00 daginn eftir, nema um helgar þá mánudagur kl 11:00. Kaupandi eða starfsmaður/flutningsaðili hans kvittar fyrir móttöku aflans og umbúðunum og ber ábyrgð á aflanum þar frá.
4.8. Endanlegar greiðslur á fiskkaupum fara fram eftir reglum Reiknistofu Fiskmarkaðanna sem sér um öll uppgjör er varða kaupenda fyrir FMS.
4.9. Uppgjör seljenda er í höndum FMS og sendir markaðurinn út afreikninga ( e-maili/pósti) og greiðir út á föstudögum fyrir vikuna á undan. Hver reiknisvika er frá föstudegi til fimmtudags. Seljendum ber skylda til að upplýsa um skráningu og/eða breytingar á útgerðaraðila og hvert inna skal greiðslu af hendi innan yfirstandandi söluviku. FMS ber ekki ábyrgð ef réttar upplýsingar berast ekki og rangur aðili (t.d. fyrri eigandi) fær greiðslur fyrir sölu.
4.10. Innborganir kaupenda fara eftir reglum RSF samkvæmt ábyrgðum.
4.11. Kaupanda er óheimilt að kaupa áfram ef hann greiðir ekki á gjalddaga, þó ábyrgð sé ekki að fullu nýtt.

5. Þóknun.
5.1. Þóknun fiskmarkaðsins er samkvæmt gjaldskrá hverju sinni, sjá vef www. fms.is

6. Önnur ákvæði.
6.1. Fiskmarkaðurinn áskilur sér rétt til breytinga á framangreindum starfsreglum að fenginni reynslu.
6.2. Starfsreglur þessar eru háðar staðfestingu sjávarútvegsráðherra.