FMS Logo

Nýr framkvæmdastjóri FMS hf

11.1.2023

FMS hf hefur ráðið Einar Guðmundsson sem nýjan framkvæmdastjóra félagsins. Hann tekur við starfinu af Ragnari H. Kristjánssyni þann 31. janúar n.k.

Einar er fæddur og uppalinn í Bolungarvík á Vestfjörðum og hefur víðtæka reynslu af sjávarútvegi. Hann kemur til FMS úr starfi framkvæmdastjóra hjá Norðanfiski á Akranesi en þar áður var hann framkvæmdastjóri fiskeldisfyrirtækisins Hábrúnar í Hnífsdal. Þar áður starfaði hann sem skipstjóri í áratug og rak útgerð ásamt fjölskyldu sinni í Bolungarvík. Þá er hann útskrifaður viðskiptafræðingur úr Háskólanum á Bifröst. Einar er rúmlega fertugur að aldri og er búsettur í Garðabæ ásamt maka og þremur börnum.

Ragnar H. Kristjánsson lætur af störfum að eigin ósk eftir að hafa gegnt stöðu framkvæmdastjóra FMS hf í 22 ár, en hann hafði þar áður starfrækt fiskmarkað í Hafnarfirði í átta ár og því verið í fiskmarkaðsumhverfinu síðan 1992. Á sama tíma lætur einnig af störfum Þórður M. Kjartansson, skrifstofustjóri FMS hf til 22 ára, einnig að eigin ósk. Stjórn FMS hf vill koma á framfæri þakklæti til þeirra beggja fyrir störf sín í þágu félagsins.

Fyrir hönd stjórnar FMS hf,
Pétur Jóhannsson, stjórnarformaður FMS hf,
Sandgerði, 11. janúar 2023.